← Allir listamenn

Mezzósópran

Arnheiður Eiríksdóttir

Íslensk mezzósópransöngkona sem hefur verið fastráðin einsöngvari við Þjóðleikhúsið í Prag frá árinu 2020. Þar hafa hlutverk hennar meðal annars verið Charlotte í Werther, Rosina í Rakaranum í Sevilla, Hans í Hans og Grétu, Dorabella í Così fan tutte og Cherubino í Brúðkaupi Fígarós. Hún hlaut tékknesku Thalíu-verðlaunin sem óperusöngvari ársins 2023 fyrir Oktavian í Rósariddaranum eftir Richard Strauss og var tilnefnd ári síðar fyrir frumraun sína sem tónskáldið í Ariadne auf Naxos. Haustið 2024 var hún útnefnd Bjartasta vonin á Alþjóðlegu óperuverðlaununum í München. Hún hefur sungið víða í Evrópu og Asíu og kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2024 með sönglögum eftir Edvard Grieg.

Arnheiður Eiríksdóttir í perluskreyttum kjól við rauðan vegg.

Framundan