Classical Iceland
Allir viðburðir

Óperudagar 2026 · Annað

Þunnt skæni á logandi vök

Umsjón: Óperudagar

Andlitsmynd konu á gráu fjallalandslagi með rauðum rákum.

Kammerópera Hildigunnar Rúnarsdóttur varð til árið 2021 og fjallaði þá um gróðurelda í Ástralíu. Síðan hefur hún verið endursamin um eld af öðru tagi. Nýr texti Magneu J. Matthíasdóttur er langt kvæði sem landið sjálft mælir, og eldurinn er sá sem gengið hefur upp um Reykjanes undanfarin ár. Hallveig Rúnarsdóttir syngur með Camerarctica við kvikmynd og ljósmyndir Ásdísar Thoroddsen. Í ágúst var verkið flutt inni í yfirgefnum tönkum á Raufarhöfn.

Efnisskrá

  1. Hildigunnur RúnarsdóttirÞunnt skæni á logandi vök