
Grænland er næsti nágranni Íslands og löndin hafa lengst af haft fátt hvort við annað að segja. Hér mætast tvær frásagnir af sömu ógæfunni. Annars vegar grænlenska sögnin um Navaranaaq, konu sem sáði tortryggni milli norrænna manna og inúíta þar til hlaust af ófriður, hins vegar Ólafs ríma Grænlendings eftir Einar Benediktsson, sem segir frá endalokum byggðarinnar frá íslenskri hlið. Kimmernaq Støvlbæk hefur samið nýjan texta á grænlensku og Nuka Alice flytur inúískan trumbudans þar sem takturinn fylgir hjartslætti flytjandans. Kórar og strengjasveit.