← Allir viðburðir
Þjóðlagatónlist
Saga Musica: Valgeir Guðjónsson syngur um Íslendingasögurnar
Umsjón: Saga Musica

Saga Musica er lagabálkur eftir Valgeir Guðjónsson þar sem hvert lag sækir efni í Íslendingasögurnar og norræna goðafræði. Valgeir samdi textana á ensku, svo að gestir sem ekki skilja íslensku geti fylgt sögunum ekki síður en heimamenn. Hann syngur lögin sjálfur við kassagítar. Undanfarin tólf ár hefur bálkurinn einkum verið fluttur fyrir erlenda gesti á lokuðum viðburðum. Valgeir var meðal stofnenda Stuðmanna og Spilverks þjóðanna á áttunda áratugnum. Tónleikarnir taka um eina og hálfa klukkustund með hléi.
Flytjendur
- Valgeir Guðjónssonsöngur og gítar