
Anok er nýtt verk eftir Högna Egilsson, samið fyrir Cantoque Ensemble, orgel, selló, slagverk og einsöngvara. Anok er koptíska orðið fyrir ég. Textinn er sóttur í fornt ljóð sem fannst við Nag Hammadi í Efra-Egyptalandi árið 1945, í afriti frá fjórðu öld, þar sem ein rödd lýsir sjálfri sér í andstæðum: hin fyrsta og hin síðasta, móðir og dóttir. Högni stjórnar og einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir. Tónleikarnir eru samstarf Cantoque Ensemble, Iceland Airwaves og Hallgrímskirkju.
Efnisskrá
- Högni EgilssonAnok
Flytjendur
- Högni Egilssontónskáld og stjórnandi
- Cantoque Ensemblekór
- Hallveig Rúnarsdóttireinsöngvari
- Hildigunnur Einarsdóttireinsöngvari