Píanóleikari sem stundaði framhaldsnám í Freiburg og lauk þaðan kennaraprófi árið 2004 og nam síðan við ljóðasöngdeild Tónlistarháskólans í Stuttgart, þaðan sem hún lauk sérhæfðu diplómanámi sumarið 2007. Hún leikur með söngvurum, flytur kammertónlist og hljóðritar fyrir útvarp og á geisladiska. Hún hefur verið tónlistarstjóri óperuuppfærslna Söngskólans í Reykjavík, ferðast um landið og kynnt óperutónlist og íslenska sönglagið fyrir grunnskólabörnum og kennir við þrjá tónlistarskóla í Reykjavík.