Classical Iceland
Allir viðburðir

Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar

Ungsveitin leikur Sheherazade

Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands velur sér eitt stórt verk á ári og hefur að þessu sinni valið Sheherazade eftir Rimskíj-Korsakov. Verkið er byggt á Þúsund og einni nótt, þar sem Sheherazade heldur lífi með því að segja soldáninum sögu kvöld eftir kvöld. Rimskíj-Korsakov kunni öðrum betur að skrifa fyrir hljómsveit og notar hér allan litaskala hennar. Nathanaël Iselin stjórnar. Um klukkustund án hlés.

Efnisskrá

  1. Nikolaj Rimskíj-KorsakovSheherazade

Flytjendur