← Allir viðburðir
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar
Tan Dun & Stravinskíj
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Tan Dun stjórnar eigin verkum og verkum Stravinskíjs. Soraya Nayyar, leiðari pákudeildar hljómsveitarinnar, leikur einleik í Water Concerto, þar sem vatn er sjálft einleikshljóðfærið. Tvö verk Stravinskíjs hljóma í fyrsta sinn hér á landi: æskuverkið Flugeldar og tónaljóðið Söngur næturgalans, sem hann vann upp úr óperu sinni frá 1914 og segir af því hvernig söngur næturgalans bræddi hjarta keisarans. Tan Dun hlaut Óskars-, Grammy- og BAFTA-verðlaun fyrir tónlistina við Crouching Tiger, Hidden Dragon og er góðvildarsendiherra UNESCO á sviði vatnaverndar. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.
Efnisskrá
- Ígor StravinskíjFeu d'artifice, Flugeldar
- Tan DunWater Concerto, konsert fyrir vatnsslagverk og hljómsveit
- Ígor StravinskíjLe chant du rossignol, Söngur næturgalans
- Tan DunPassacaglia: Secret of Winds and Birds