← Allir viðburðir
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Kammertónlist
Sakari stjórnar blásarasveitinni
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Blásarasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands leikur í Norðurljósum undir stjórn Petris Sakari, fyrrum aðalstjórnanda hljómsveitarinnar. Tónleikarnir hefjast á lúðragjalli Pauls Dukas úr balletttónlistinni við La Péri. Þá koma Dixtour eftir Darius Milhaud og Sinfóníur fyrir blásara eftir Stravinskíj, verk sem tileinkað er minningu Claudes Debussy og endar á kyrrlátum kóral. Ruth Gipps var enskt tónskáld og óbóleikari, og Seascapes hennar er skrifað fyrir tíu blásara. Tónleikunum lýkur á Gran Duo eftir Magnus Lindberg, þar sem tré- og málmblásarar takast á, tuttugu og fjórir talsins. Tónleikarnir taka um klukkustund án hlés.
Efnisskrá
- Paul DukasFanfare pour précéder la péri
- Darius MilhaudDixtour
- Ígor StravinskíjSinfóníur fyrir blásara
- Ruth GippsSeascapes
- Magnus LindbergGran Duo
Flytjendur
- Blásarasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslandsblásarasveit