← Allir viðburðir
Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar
Draumur á Jónsmessunótt
Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Barbara Hannigan stjórnar síðustu áskriftartónleikum starfsársins og syngur jafnframt. Tónleikarnir hefjast á fjórum þáttum úr tónlist Mendelssohns við Draum á Jónsmessunótt, þar á meðal forleiknum og brúðkaupsmarsinum. Dansasinfónía Aarons Copland hljómar í fyrsta sinn hér á landi, en hann vann hana upp úr balletti sem aldrei varð. Þá koma vals úr söngleik Richards Rodgers og At the Fair eftir Billy Barnes í nýrri útsetningu Hannigan og Bills Elliott. Tónleikarnir eru endurteknir í Hofi á Akureyri daginn eftir, án Dansasinfóníunnar. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.
Efnisskrá
- Felix MendelssohnFjórir þættir úr Draumi á Jónsmessunótt
- Aaron CoplandDance Symphony
- Richard RodgersCarousel Waltz (úts. Don Walker)
- Billy BarnesAt the Fair (úts. Barbara Hannigan og Bill Elliott)