Classical Iceland
Allir viðburðir

Sinfóníuhljómsveit Íslands 2026–27 · Sinfóníutónleikar

Ásta Dóra leikur Grieg

Umsjón: Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ásta Dóra Finnsdóttir leikur píanókonsert Griegs í a-moll. Hún kom fyrst fram með hljómsveitinni fjórtán ára gömul árið 2021 og stundar nú framhaldsnám við Curtis Institute of Music í Fíladelfíu. Tónleikarnir hefjast á Helíos-forleik Carls Nielsen, og eftir hlé er Shadows of Solace eftir Önnu Þorvaldsdóttur flutt í fyrsta sinn hér á landi. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt hljómsveitunum í Boston, Leipzig og Helsinki. Tabita Berglund stjórnar, en hún tekur við sem aðalhljómsveitarstjóri í Bergen haustið 2026. Tónleikarnir taka um tvær klukkustundir með hléi.

Efnisskrá

  1. Carl NielsenHelíos, forleikur
  2. Edvard GriegPíanókonsert í a-moll
  3. Anna ÞorvaldsdóttirShadows of Solace

Flytjendur