
Sópransöngkona líður eftir vatninu í útisundlaug, í risavöxnum kjól úr regnhlífum, dregin hægt áfram af tveimur fylgdarmönnum, og syngur. Victorine Pasman á hugmyndina og hannaði búninginn og sótti í sautjándu aldar klæðnað, flatt hollenskt landslag og gamlar sögur af hafmeyjum og konum sem rak á land. Þegar birtu bregður fer kjóllinn að lýsa.