
Patrick Egersborg ætlar sér feril í óperusöng og grunar að heimurinn endist ekki út hann. Úr því smíðar hann kvöldið. Aríur úr Rigoletto, Macbeth, Hollendingnum fljúgandi og Manninum frá La Mancha eru ofnar saman við eigin texta og talsvert sjálfsháð. Herning Opera Festival pantaði verkið eftir að hafa séð brot úr því á Óperudögum árið 2023, og það var frumsýnt í Danmörku árið eftir. Egersborg syngur og Stefan Ibsen Zlatanos leikur á píanó.