
Steingrímur Þórhallsson leikur Clavier-Übung III eftir Johann Sebastian Bach á orgel Langholtskirkju á siðbótardaginn, 31. október. Verkið kom út árið 1739 og er stundum kallað þýska orgelmessan: sálmforleikir við sálma lútersku messunnar og fræðanna, milli prelúdíu og fúgu í Es-dúr. Það heyrist sjaldan. Steingrímur lék það í kirkjunni í júní, að minni verkunum frátöldum, og nú leikur hann verkin aftur og segir frá þeim í upphafi og á völdum stöðum. Hann var ráðinn organisti Neskirkju haustið 2002 og sagði starfinu lausu vorið 2026. Tónleikana tileinkar hann organistum með menntun í kirkjutónlist sem enn starfa innan þjóðkirkjunnar. Aðgangur er ókeypis og frjáls framlög renna til fyrrverandi organista kirkjunnar.