
Sagan af Dimmalimm kóngsdóttur og svaninum, sem Muggur skrifaði og myndskreytti árið 1921, er sögð í Hörpuhorni með tónlist Atla Heimis Sveinssonar í útsetningu Þórðar Magnússonar. Píanókvartettinn Negla leikur og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir syngur. Sagan tekur hálftíma og er sögð tvisvar sama morguninn, klukkan hálf ellefu og hálf tólf. Aðgangur er ókeypis og ekki þarf að sækja miða.