← Allir viðburðir

Fjölskylduviðburður

Dimmalimm með Píanókvartettinum Neglu

Umsjón: Harpa

Teikning Muggs af Dimmalimm, lítilli kóngsdóttur með kórónu, í bláum kjól og bleiku pilsi undir boga úr blómum og vafningsviði með kórónu efst.
Mynd: Muggur (Guðmundur Thorsteinsson)

Sagan af Dimmalimm kóngsdóttur og svaninum, sem Muggur skrifaði og myndskreytti árið 1921, er sögð í Hörpuhorni með tónlist Atla Heimis Sveinssonar í útsetningu Þórðar Magnússonar. Píanókvartettinn Negla leikur og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir syngur. Sagan tekur hálftíma og er sögð tvisvar sama morguninn, klukkan hálf ellefu og hálf tólf. Aðgangur er ókeypis og ekki þarf að sækja miða.

Flytjendur