← Allir listamenn

Tenór

Sveinn Dúa Hjörleifsson

Tenór sem nam við Söngskóla Sigurðar Demetz og Universität für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg. Hann var fastráðinn við Landestheater Linz og síðar við Óperuna í Leipzig, þar sem hlutverk hans hafa meðal annars verið Tamínó í Töfraflautunni, Don Ottavio í Don Giovanni, Narraboth í Salóme og Cassio í Otello. Hann hefur sungið í Konzerthaus og Musikverein í Vínarborg, Semperoper í Dresden, Oper Frankfurt, á Wiener Festwochen og Berliner Festtagen og tók þátt í heimsfrumflutningi á Terra Nova eftir Moritz Eggert og í endurtúlkun Davids Lang á Parsifal Wagners. Drag-uppfærsla hans á Die schöne Müllerin var tilnefnd sem sýning ársins og hann sjálfur sem söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Hann söng tenóreinsönginn í níundu sinfóníu Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands á opnunartónleikum Hörpu árið 2011.

Svarthvít mynd af Sveini Dúa Hjörleifssyni með gleraugu í dökkum bol.

Framundan