Kór stofnaður árið 1960 af Róberti Abraham Ottóssyni og áhugafólki um flutning sígildra kórverka. Fyrsta aldarfjórðunginn starfaði hann náið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur starfað á eigin vegum síðan. Kórinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2014 fyrir flutning sinn á Þýskri sálumessu Brahms. Hann hefur fjórum sinnum sungið á Klassíkinni okkar, flutt Sálumessu Mozarts með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og níundu sinfóníu Beethovens með Ungsveit Sinfóníunnar, og sungið kórhlutverkin í Evítu og Moulin Rouge í Hörpu. Kórinn hefur sótt kóramót víða um Evrópu, síðast í Flórens.