← Allir listamenn

Píanóleikari

Sólveig Anna Jónsdóttir

Íslenskur píanóleikari, fædd á Akureyri 21. maí 1959. Hún hóf píanónám hjá Ragnari H. Ragnar á Ísafirði og nam einnig við Tónlistarskólana á Akureyri og í Reykjavík, en lagði stund á framhaldsnám hjá Nancy Weems við Háskólann í Houston í Texas; aðrir kennarar hennar voru Philip Jenkins og Halldór Haraldsson. Sólveig Anna hefur lengst af haft píanókennslu og meðleik með nemendum að aðalstarfi og gegnir nú stöðu aðstoðarskólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar. Meðfram kennslu hefur hún tekið virkan þátt í tónlistarlífinu, haldið tónleika hérlendis og erlendis sem meðleikari einsöngvara og kóra, leikið kammertónlist af ýmsu tagi og tekið þátt í flutningi verka með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperunni og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Framundan

Ekkert framundan.