Sellóleikari
Páll Einarsson
Íslenskur sellóleikari og jarðeðlisfræðingur, fæddur í Reykjavík árið 1947. Hann stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík á yngri árum og leikur jafnt á selló og kontrabassa, og hefur um árabil verið formaður Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna og leitt sellósveit hennar. Páll er prófessor emeritus í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands og á að baki afar langan og afkastamikinn feril við rannsóknir og kennslu á sviði jarðskorpuhreyfinga, jarðskjálfta, flekahreyfinga og eldgosa. Hann lauk fyrri hluta prófs í eðlisfræði við Háskólann í Göttingen árið 1970 og meistara- og doktorsprófi frá Columbia-háskóla í New York árin 1974 og 1975. Að námi loknu hóf hann störf við Raunvísindastofnun Háskólans, þar sem hann setti upp og rak Landsnet skjálftamæla, og gegndi stöðu prófessors í jarðeðlisfræði frá 1994 til 1997 og aftur frá 1999 til ársins 2017, þegar hann fór á eftirlaun. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2015, hlaut norrænu jarðvísindaverðlaunin árið 2018 og varð árið 2024 fyrstur Íslendinga til að hljóta sænsku Rossby-verðlaunin í jarðeðlisfræði.
Framundan
Ekkert framundan.