Píanóleikari og óperuþjálfari. Hún lauk grunnnámi í einleik frá Listaháskóla Íslands árið 2007, meistaraprófi í meðleik frá Royal Academy of Music í London og meistaraprófi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire of Scotland árið 2014, þar sem hún hlaut James H. Geddes-verðlaunin. Hún hefur unnið að óperuuppfærslum hjá Íslensku óperunni, Scottish Opera og British Youth Opera meðal annarra. Hún er aðjúnkt við Listaháskóla Íslands og meðleikari við Menntaskólann í tónlist.