Classical Iceland
Allir listamenn

Kórstjóri

Margrét Bóasdóttir

Söngkona og kórstjóri sem hlaut riddarakross fálkaorðunnar á nýársdag 2024 fyrir framlag til tónlistarflutnings og kórmenningar. Hún gegndi embætti söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, sem biskup skipar í til að fylgja eftir stefnu kirkjunnar um sönginn í helgihaldinu og um menntun þeirra sem að honum starfa. Þegar hún fluttist norður í Þingeyjarsýslu árið 1987 var hún beðin að taka við Kvennakórnum Lissý, sem þá hafði sungið í tvö ár. Kórinn taldi brátt sextíu konur, gaf út hljómdisk og fór í söngferðir til útlanda. Í maí 1992 gekkst hún ásamt fleirum fyrir móti kvennakóra fyrir norðan, þar sem fimm kórar og hundrað og fimmtíu konur komu saman. Í apríl 2003 var hún meðal þeirra sem stofnuðu Landssamband íslenskra kvennakóra, Gígjuna. Stofnkórarnir voru sautján með tæplega átta hundruð söngkonum. Sem sópran hefur hún sungið íslenska tónlist með Birni Steinari Sólbergssyni organista í tónleikaröðinni Bláu kirkjunni á Seyðisfirði. Hún var um skeið stjórnandi Unglingakórs Selfosskirkju, og fyrrum félagar úr þeim kór syngja nú undir hennar stjórn.

Framundan