Organisti og kórstjóri
Magnús Ragnarsson
Organisti sem hefur starfað í Langholtskirkju frá árinu 2017 og er listrænn stjórnandi tónlistarstarfsins þar. Hann stjórnar Kór Langholtskirkju, sem skipa 32 menntaðir tónlistarmenn. Hann nam við Tónlistarskólann í Reykjavík, Tónskóla þjóðkirkjunnar og Tónlistarháskólann í Gautaborg og lauk framhaldsnámi í kórstjórn hjá Stefan Parkman við Háskólann í Uppsölum. Söngsveitinni Fílharmóníu hefur hann stjórnað frá janúar 2006, Hljómeyki árin 2006 til 2012 og Melodiu, kammerkór Áskirkju, árin 2007 til 2017, og hann er kórstjóri Íslensku óperunnar. Kórstjórn kennir hann við Tónskóla þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Hann hefur stjórnað ballettum og kammeróperum og Lutosławski-fílharmóníunni í Póllandi og unnið til verðlauna með kórum sínum í Tours, Llangollen, Arezzo og í Béla Bartók-kórakeppninni í Ungverjalandi, þar sem hann fékk sérstök verðlaun fyrir flutning á nútímaverki. Árið 2015 var hann tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir flutning á Þýskri sálumessu Brahms, og árið eftir var hljómdiskur Melodiu undir stjórn hans tilnefndur sem plata ársins.
Framundan


Jólatónleikar Fílharmóníunnar
Langholtskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Verð ekki birt
