Kvennakór Reykjavíkur
Kvennakór sem hóf starf í janúar 1993 og var formlega stofnaður 8. maí sama ár, að loknum vortónleikum í Langholtskirkju. Hugmyndin kom frá Margréti J. Pálmadóttur og konum í kórskóla hennar í Kramhúsinu, og samkvæmt lögum kórsins er markmið hans að efla söngmennt kvenna. Í honum eru að jafnaði sjötíu til níutíu konur og hann heldur aðventutónleika og vortónleika á hverju ári. Í kórakeppni í Tékklandi árið 2002 vann hann tvenn silfurverðlaun, í flokki kvennakóratónlistar og í þjóðlagatónlist. Á fyrstu árunum var aðsóknin slík að þrír kórar til viðbótar urðu til í kringum hann. Þeir urðu sjálfstæðir árið 2000 og Kvennakórinn rekur nú Senjorítur, kór eldri kvenna. Margrét stjórnaði kórnum frá stofnun, Sigrún Þorgeirsdóttir tók við í september 1997 og Ágota Joó í janúar 2010.
Framundan
Ekkert framundan.