Kontrabassaleikari
Kjartan Guðnason
Íslenskur slagverksleikari og kontrabassaleikari. Hann hóf tónlistarnám tólf ára gamall við Tónlistarskóla Seltjarnarness og hélt áfram námi við Tónlistarskóla FÍH í Reykjavík, en lauk framhaldsnámi í slagverksleik við Tónlistarháskólann í Amsterdam. Að því loknu lék hann með Sinfóníuhljómsveit æskunnar undir stjórn Pauls Zukofsky á árunum 1986 til 1994 og var leiðari páku- og slagverksdeildar Orkester Norden árin 1994 og 1995. Síðastliðin þrjátíu og fimm ár hefur Kjartan leikið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljómsveit Íslensku óperunnar, kammersveitinni Caput og í fjölmörgum leiksýningum Borgarleikhússins og Þjóðleikhússins, og hefur komið fram með Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam, Bach Collegium Japan og Orchestra of the Eighteenth Century. Hann leikur á kontrabassa með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna frá árinu 1996 og hlaut þjálfun á það hljóðfæri hjá Jóni bassa í FÍH og síðar hjá Rudolf Agert í München. Hann kennir við Skólahljómsveit Kópavogs.
Framundan
Ekkert framundan.