← Allir listamenn

Karlakórinn Fóstbræður

Karlakór sem hefur starfað samfellt frá haustinu 1916, lengur en nokkur annar karlakór á Íslandi. Þá tók Jón Halldórsson við söngstjórn félags sem hafði sungið innan KFUM frá árinu 1911, og kórinn kenndi sig við þann félagsskap til ársloka 1936 þegar hann tók upp nafnið Fóstbræður. Fyrst söng hann með Sinfóníuhljómsveit Íslands í uppfærslu Þjóðleikhússins á Rigoletto árið 1951. Síðan hefur hann flutt með hljómsveitinni Il trovatore eftir Verdi (1956), Alþingishátíðarkantötu Páls Ísólfssonar (1968), Oedipus Rex eftir Stravinskíj (1971 og 2004), Þrymskviðu Jóns Ásgeirssonar (1975), þrettándu sinfóníu Shostakovitsj, Babí Jar (1990, 2002 og 2006), Kullervo eftir Sibelius ásamt Karlakór Reykjavíkur (2015) og Alt-rapsódíu Brahms (2016). Árni Harðarson hefur stjórnað kórnum frá árinu 1991.

Karlakórinn Fóstbræður í kjólfötum, séð ofan á raðirnar.

Framundan

Ekkert framundan.