← Allir listamenn

Kammerkórinn Huldur

Kammerkór sem steig fyrst á kórpalla haustið 2021, skipaður tuttugu og níu ungmennum og undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar. Nafnið er sótt til huldunnar sem knýr öldurnar fram með langspili sínu í ljóði Gríms Thomsen og saumar sólargull í vatnsdropa fossins hjá Hannesi Péturssyni. Tveimur árum eftir stofnun hafði kórinn frumflutt tuttugu og átta kórverk, meðal annars eftir Hafstein Þórólfsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson. Hann söng á Óperudögum árið 2023.

Framundan

Ekkert framundan.