Organisti
Jón Bjarnason
Íslenskur organisti og kórstjóri, fæddur í Skagafirði árið 1979. Hann hóf píanónám sjö ára gamall og lauk 8. stigs prófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu árið 1998 og píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2003. Hann lauk kantorsprófi og einleiksáfanga í orgelleik frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2006, og á árunum 2011 til 2012 nam hann orgelleik við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Bine Bryndorf. Jón var ráðinn kantor og dómorganisti við Skálholtsdómkirkju árið 2009, en var áður organisti í Seljakirkju. Hann stjórnar Skálholtskórnum og Söngkór Miðdalskirkju, er fastráðinn organisti við tíu kirkjur í Skálholtsprestakalli og hefur leikið sem meðleikari með Karlakór Selfoss frá árinu 2011. Hann hefur komið reglulega fram sem einleikari á orgeltónleikum í Skálholtsdómkirkju, Selfosskirkju, á Alþjóðlegu orgelsumri og Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju og víðar á Suðurlandi.
Framundan
Ekkert framundan.