Ljóðræn sópransöngkona úr Skagafirði sem nam í Reykjavík, Stokkhólmi og Ósló og lauk meistaraprófi árið 2023. Næsta starfsár var hún ungur listamaður við Norsku óperuna og söng þar Anninu í La traviata og Kate Pinkerton í Madama Butterfly. Á námsárunum söng hún Kennslukonuna í Turn of the Screw, Mimì og Gertrude Stein í 27. Ný ópera heillar hana mest. Hún söng Svörtu drottninguna í frumflutningi á Lísu í Undralandi eftir John Speight árið 2021.