← Allir listamenn
Dómkórinn
Kór Dómkirkjunnar í Reykjavík, sem annast messusöng í kirkjunni. Tónlistin þar á sér langa sögu: fyrsta orgelið í íslenskri kirkju kom í Dómkirkjuna árið 1840, sama ár og Pétur Guðjohnsen, fyrstur Íslendinga með organistamenntun, hóf þar störf. Kórinn hefur gefið út hljómdiska og haldið tónleika heima og erlendis, og öll helstu tónskáld þjóðarinnar, auk nokkurra erlendra, hafa samið verk fyrir hann. Hann hefur tekist á við Þýska sálumessu Brahms, Jólaóratoríuna og Jóhannesarpassíu Bachs og Sálumessu Mozarts. Félagar úr kórnum skipa Kammerkór Dómkirkjunnar, sem syngur einkum við útfarir frá kirkjunni og við opinberar athafnir. Stjórnandi kórsins er Matthías Harðarson dómorganisti.
Framundan
Ekkert framundan.