Sópransöngkona sem lauk meistaraprófi í óperusöng frá Mozarteum-háskólanum í Salzburg árið 2021, summa cum laude, hjá Michèle Crider. Áður nam hún við Listaháskóla Íslands hjá Þóru Einarsdóttur, Kristni Sigmundssyni og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Hún hlaut Grímuna árið 2025 fyrir greifynjuna í Brúðkaupi Fígarós, fyrstu verðlaun í Certamen Nuevas Voces Ciudad de Sevilla árið 2022 og fyrstu verðlaun í Riccardo Zandonai-keppninni árið 2021. Hún hefur sungið í Dresden, Essen, Dortmund, Madríd, München, Salzburg, Prag, Róm og Vilníus.