Leikari og leikstjóri sem lauk BFA-gráðu frá sviðslistadeild Listaháskóla Íslands árið 2007 og hefur síðan leikið hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar, auk þess að starfa mikið með sjálfstæðum leikhópum. Hann samdi og lék einleikinn Góðan daginn, faggi, sem sýndur var í Þjóðleikhúsinu, fór í leikferð um skóla landsins og var sýndur á Edinburgh Fringe. Hann hefur einnig langt söngnám að baki, í Reykjavík og við Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn.