Íslenskur tenór. Hann lauk 8. stigs prófi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2019 og voru söngkennarar hans þar Bergþór Pálsson, Egill Árni Pálsson og Garðar Cortes. Veturinn 2019 til 2020 stundaði hann söngnám hjá hljómsveitarstjóranum Marc Tardue í Vín og lauk síðan bakkalárgráðu í söng frá Listaháskóla Íslands, þar sem söngkennarar hans voru Dísella Lárusdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson, Kolbeinn Ketilsson og Ryan Driscoll. Á námsárunum söng hann Tamínó í Töfraflautunni eftir Mozart og Gabríel von Eisenstein í Leðurblökunni eftir Johann Strauss hinn yngri í uppfærslum skólans, og sumarið 2023 fór hann með hlutverk Fentons í Falstaff eftir Verdi á vegum La musica Lirica.