
Michael McGlynn stofnaði írska sönghópinn Anúna árið 1987. Verk hans og útsetningar eru uppistaðan í því sem hópurinn syngur. Nafnið er dregið af An Uaithne, hugtaki úr írskum sagnaheimi sem nær yfir þrenns konar tónlist: svefnljóð, gleðisöng og harmljóð. Hópurinn hefur sungið í Concertgebouw í Amsterdam og í Radio City Music Hall í New York og verið aðalflytjandi á BBC Proms. Raddir hans heyrast í tónlist tölvuleikjanna Diablo og Xenoblade. Platan Eilifð, sem kom út í febrúar 2025, var kláruð hér á landi.